Islandspostur  
hafa samband um vefinn leyfisskraning hjálp  
PÚKI 2007  
verð, sölufyrirkomulag og tæknilegar 
upplýsingar
   
Leiðréttingarforrit fyrir Íslenska stafsetningu          
hjálp í baráttunni við ritvillurnar
 
DRAUMA FORRIT FYRIR ALLA SEM RITA ÍSLENSKT MÁL

Leiðréttir öll forritin í
Office XP, Office 2003 og Office 2007
Word Excel Access Powerpoint Outlook Frontpage
Púki 2007 einstaklingsútgáfa gildir á allt að fimm vélar á einu heimili .
   
hvaða Office er ég með
 


Ritvilluvörn fyrir Microsoft Office pakkann
Púki 2007 er loksins kominn út!

Púki 2007 er ritvilluvörn gerð fyrir Office hugbúnaðarpakkann frá Microsoft. Hægt er að tengja Púkann inn í öll forrit pakkans, og láta hann þannig lesa yfir texta jafnt í Microsoft Word, Microsoft Excel sem og öðrum forritum í Office hugbúnaðarpakkanum.

Púkinn getur lesið yfir texta sem skrifaður er í Office pakkanum bæði jafnóðum sem og eftir á. Þegar Púkinn rekst á ritvillu í þeim texta sem hann les yfir, strikar hann með rauðum lit undir orðið sem hann telur vera rangt.

Athugið að með kaupum á Púka 2007 fylgir leyfi til notkunar á allt að fimm tölvum heimilisins.

HEIMILI
Heimilisleyfi til notkunar á allt að fimm tölvum heimilisins kr. 6500.-. >>kaupa

FYRIRTÆKI-TILBOÐ
Gerum fyrirtækjum hagstæð tilboð í Fjölnotaleyfi fyrir Púka >>fá tilboð

FORRITIÐ INNIHELDUR
•ritvilluvörn
•beygingarforrit
•samheitaorðasafn
PÚKI GETUR
•LÆRT NÝ ORÐ OG LEIÐRÉTT ÞAU UM
LEIÐ OG ÞAU ERU SKRIFUÐ
•BÆTT ORÐUM Í ORÐASAFNIÐ SITT
•SKIPT ORÐUM Á MILLI LÍNA
•GEFIÐ UPP SAMHEITI ORÐA
SJÁLFSTÆTT BEYGINGARFORRIT
•GERIR NOTENDUM KLEIFT AÐ FLETTA
UPP BEYGINGARMYNDUM NAFNORÐA,
SAGNORÐA OG LÝSINGARORÐA
    Púki 2007

Megintilgangur Púka 2007 er að sjá notendum fyrir fljótlegum yfirlestri og leiðréttingum á texta sem er unninn í einhverjum af forritum Office XP, Office 2003 og 2007. Hann getur einnig hjálpað til við að skipta orðum á milli lína sem og flett upp samheitum og beygingum orða.

Takmarkið er að auðvelda notendum eins og framast er unnt að framkvæma þessar aðgerðir og hefur því verið ákveðið að binda Púkann áfram við Office þar sem flest utanaðkomandi forrit geta tengst því frekar en öðrum þekktum forritum. Púki 2007 hefur verið lagaður að Office 2007 pakkanum og orðasafn hans endurbætt verulega frá fyrri útgáfum.
Helstu eiginleikar Púka 2007
Samhæfður Office 2007. Púkinn er áfram bundinn Office og er innbyggður í öll forrit Office XP, 2003 og 2007.


Endurbætt orðasafn. Orðasafn Púka 2007 er mun stærra og yfirgripsmeira en í fyrri útgáfum. Frá því Púki kom fyrst út hefur almenn málnotkun breyst mikið og því var nauðsynlegt að bæta og stækka orðasafnið með tilliti til þess. Endurbæturnar voru styrktar af tungutæknisjóði Menntamálaráðuneytisins (www.tungutaekni.is).


Einföld uppsetning. Púkinn býður upp á einfalda og hraða uppsetningu. Hægt er að sníða hana að þörfum hvers notanda, t.a.m. má ráða hvaða eiginleikar Púkans skulu uppsettir og hvar skrár Púkans skulu geymdar.


Sérstakt beygingarforrit. Púka 2007 fylgir einfalt og aðgengilegt beygingarforrit sem er ekki byggt inn í Púkann en notar sama orðasafn. Forritið gefur upp allar beygingarmyndir nafnorða, sagnorða og lýsingarorða sem eru í orðasafni Púkans.


Saga Púkans

Púkinn á sér orðið langa sögu og hefur gengið í gegnum margvíslegar breytingar á undanförnum árum. Púkinn var í upphafi lokaverkefni í tölvunarfræði við Háskóla Íslands og voru grunnhlutar hans skrifaðir á Vax-tölvu skólans á árunum 1984-1987 af Friðriki Skúlasyni.

Púki 1.0 kom út árið 1987. Það var sambærilegt forrit við Púka 2007 nema hvað það var einungis ætlað til notkunar samhliða ritvinnsluforritum í textaham (t.d. Word 3.0) á PC samhæfðum tölvum.

Púki 2.0 kom út árið 1993 eftir að Steinþór Bjarnason hafði tekið upp forritun Púkans fyrir Windows. Þessi útgáfa hafði að geyma merkar nýjungar í aðgerðavali en þær voru skjala- og orðskiptingar í texta.

Púki 3.0 kom út árið 1994 og var sú útgáfa verulega endurbætt. Helstu breytingarnar fólust í að Púki var hannaður til notkunar með Word 6.0 fyrir Windows. Sú breyting varð til þess að hægt var að bjóða upp á að fletta upp samheitum og beygingum orða, fletta upp í enskri orðabók, skipta orðum milli lína og lesa eitt orð yfir í senn.

Glugga-Púki 4.0 kom út árið 1996. Sú útgáfa var sniðin fyrir Windows 95 til að nota með Word 7 en að öðru leyti var litlu breytt.

Púki 2002 kom út árið 2001. Þessi útgáfa var sérstaklega hönnuð til notkunar með Windows XP og Office XP og voru þá bæði handbók og útlit Púka endurbætt.

Púki 2003 kom út árið 2003. Með þessari útgáfu var stuðningi bætt við fyrir Office 2003. Orðasafn Púka 2003 var stækkað til muna og gert yfirgripsmeira en í fyrri útgáfum. Frá því Púki kom fyrst út hefur almenn málnotkun breyst mikið og því var nauðsynlegt að bæta og stækka orðasafnið með tilliti til þess.

   

 

Leyfisskráning
Upplýsingar um leyfisskráningu og notendur með takmörkuð réttindi. skoða betur>>
Uppfærsla á Tívolítölum
Sérstaklega hugsuð fyrir börn sem nota tölvu fullorðinna. skoða betur>>
Snillingarnir þrautabækur
lækkað verð 740kr. Enginn flutnings-kostnaður. skoða betur>>
KidPix Deluxe 4 netútgáfa
Netútgáfa fyrir skóla, fyrir allt að 50 tölvur á ótrúlega hagstæðu verði skoða betur>>
Tívolítölur villumelding
Þessi villa kemur hjá notendum með takmörkuð réttindi skoða betur>>