Skólaorðabók í rafrænni útgáfu Ný og þróuð ensk-íslensk og íslensk-ensk orðabók.
Skólaorðabókin
er ensk-íslensk og íslensk-ensk orðabók
almenns eðlis. Byggjast orðasöfnin á
hinum vinsælu Tölvuorðabókum Máls
og menningar sem hafa verið á markaði
síðan 1993 og eru notaðar af fjölda
fyrirtækja, stofnana, skóla og einstaklinga.
Uppflettiorð í Skólaorðabókinni
er rúmlega 100.000. Hugbúnaðurinn
er sniðinn að þörfum skólanemenda
upp að háskólastigi. Segja má
að verðið á hugbúnaðinum
sé einnig sniðið að efnahag skólanemenda.
Útlit og aðgerðir eru samhæfðar
við veforðabókina sem er á http://www.ordabok.is.
Sú orðabók er notuð í vaxandi
mæli í skólum og fyrirtækjum.
Hægt er að skoða beygingar enskra og íslenskra
orða. Hægt er að fá yfirlit yfir
og æfa beygingar óreglulegra enskra sagna
með innbyggðu einkunnakerfi. Hægt er að
glósa uppflettiorð og skýringar þeirra
og geyma í skrá, sem síðan
má prenta hvenær sem er. Þannig getur
nemandi t.d. glósað öll þau ókunnugu
orð sem koma fyrir í smásögu
sem hann er að lesa og vistað í tilteknu
skjali. Svo getur hann prentað skjalið þegar
hann þarf á því að halda
og haft það tiltækt við lestur smásögunnar.
Hugbúnaðurinn býður einnig upp
á vefleit, sem gerir notanda kleift að rita
orð á íslensku og senda það
þýtt yfir á ensku í helstu
leitarvélar og heimildagagnagrunna. Notandi getur
sótt nýjustu útgáfur hugbúnaðarins,
endurbætur á orðasöfnum og þess
háttar í gegnum forritið sjálft.
Hugbúnaðurinn miðast við Windows
stýrikerfið og byggir á tækni
úr Internet Explorer frá Microsoft.
Útgefandi: Mál og menning
|