Islandspostur  
hafa samband um vefinn leyfisskraning hjálp  

Tívolítölur Snillingana markhópur 4 til 9 ára sjá auglýsingu>>

Tívolítölur er einstaklega velheppnaður tölvuleikur og afburðar kennsluforrit. Það hefur hlotið margvísleg verðlaun og er að koma út á mörgum evrópumálum. Tívolítölur gera stærðfræðina lifandi og leikandi létta.
     

Hlátrasmiðjan
Sýnd er merking táknanna "minna en", "meira en", og "jafnt og" með því að setja hlátra og fliss á vogarskálar.
sjá skjámyndir>>  

     

Smellnu Trúðarnir
Sýna samlagningu, frádrátt og margföldun með ýmsum
fimleikaatriðum.

Tívolíbílar
Klessubílum er lagt á bílastæði og flokkaðir í mengi eftir ýmsum sérkennum svo sem, litum, hljóðum, bílstjórum, faratækjum og tölum.

Púslið
Form og grunnatriði flatarmáls eru könnuð. Ýmis form er hægt að mæla, mála, líma og brjóta í smærri einingar.

Bólubandið
Leikið er með bólur sem einingar, tugi og hundruð, lagt saman, dregið frá, geymt og tekið til láns. Einingar eru flokkaðar í tugi, og tugir í hundruð. Þeir sem ekki kunna að telja fá góða kennslu.

 
Allir leikirnir byrja á einföldum verkefnum eins og að raða eftir lit, þekkja ýmis form, og læra að telja. Síðan þyngjast þeir sjálfkrafa eftir frammistöðu nemenda.
 
Grunnskólaútgáfa  
   
Verðlisti fyrir leigu í eitt skólaár

ATH: einungis greiðist fyrir þann tíma sem eftir er af skólaárinu.

Fjöldi leyfa   Verð    
1 1990kr.
          5 3990kr.        
          10 4990kr.      
          15 5490kr.      
          20 5990kr.      
          25 6490kr.      
          30 6990kr.      
          35 7490kr.      
          40 7990kr.      
          45 8490kr.      
          50 8990kr.      
          75 12900kr.      
          100 15900kr.      
125 16900kr.
        150 17900kr.
      175 18900kr.
         

Þetta er einmenningsútgáfa af forritinu.

Verðið miðast við notkun í einum grunnskóla.

Útgáfan hefur verði bætt frá sýniseintakinu sem var sent á alla grunnskóla að því leyti að hér þarft ekki að framkvæma neinar stillingar í Windows fyrir takmarkaða notendur.

Verð miðast við að forritið sé halað niður af netþjóni. Hægt er að fá það sent á geisladisk og greiðist þá aukalega 990kr.

 
Panta  
 
 
Grunnskólaútgáfan til leigu

Grunnskólaútgáfan af Tívolítölum SNILLINGANA verður einungis í boði sem leigueintak fyrir eitt skólaár í senn. Þeir skólar sem taka leikinn inn munu borga sem nemur því sem eftir er af skólaárinu hverju sinni.
Afhverju leiga?

Það er mikil fjárfesting að þýða vandað kennsluforrit yfir á íslensku. Þetta er að öllu leyti einkaframtak því til verkefnisins fást engir opinberir styrkir.

Miðað við þá fjármuni sem grunnskólar hafa til hugbúnaðarkaupa teljum við að með leigu sé hægt að framleiða fleiri forrit og hafa þau til boða fyrir fleiri nemendur en annars.

Með því að leigja forritið á vægu verði til grunnskóla í stað þess að selja er hægt að setja leikinn strax upp á mikinn fjölda tölva án þess að þeir þurfi að kosta miklu til. Þannig eiga fleiri nemendur strax kost á að nota forritið burt séð frá takmörkuðu aðgengi sem oft getur verið letjandi fyrir skóla sem vilja taka nýtt forrit í notkun.
Skólar geta metið notagildi forritsins ár fyrir ár eftir aðstæðum hverju sinni og hagað leigu sinni eftir því.
Skólar þurfa ekki að greiða fyrir endurnýjaðar útgáfur.
Skólar geta tekið í notkun fleiri ný forrit fyrir fleiri nemendur en annars.
   
  OG HVAÐ SEGJA NOTENDUR?

"Magnaður leikur", "krakkarnir geta unnið sjálfstætt", "smell passar í skólann" "krakkarnir mjög áhugasamir".

Umsagnirnar eru allar á eina leið.
   
Snillingarnir reikna með árangri og fjöri!
 
Leyfisskráning
Upplýsingar um leyfisskráningu og notendur með takmörkuð réttindi. skoða betur>>
Uppfærsla á Tívolítölum
Sérstaklega hugsuð fyrir börn sem nota tölvu fullorðinna. skoða betur>>
Snillingarnir þrautabækur
lækkað verð 740kr. Enginn flutnings-kostnaður. skoða betur>>
KidPix Deluxe 4 netútgáfa
Netútgáfa fyrir skóla, fyrir allt að 50 tölvur á ótrúlega hagstæðu verði skoða betur>>
Tívolítölur villumelding
Þessi villa kemur hjá notendum með takmörkuð réttindi skoða betur>>